Gerast félagi
Parkinsonsamtökin bjóða félagsmönnum upp á fræðslu, ráðgjöf og stuðning.
Félagsaðild er einnig fyrir aðstandendur. Árgjald er 5.000 kr.
Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Þú getur valið hvaða vefkökur þú leyfir með því að smella á „Stillingar“.
Parkinsonsamtökin bjóða félagsmönnum upp á fræðslu, ráðgjöf og stuðning.
Félagsaðild er einnig fyrir aðstandendur. Árgjald er 5.000 kr.
Parkinsonsamtökin bjóða upp á fjölbreytta þjálfun fyrir einstaklinga sem hafa verið greindir með Parkinson eða skylda sjúkdóma og eru á fyrri stigum sjúkdómsins. Sjúkraþjálfun er lykilþáttur í þjónustunni og mælt er með að hefja sérhæfða sjúkraþjálfun sem fyrst eftir greiningu til að viðhalda færni og hægja á framgangi sjúkdómsins.
Samhliða sjúkraþjálfun bjóða samtökin upp á iðjuþjálfun, raddæfingar, jóga, fræðslu, námskeið og stuðning. Markmiðið er að draga úr einkennum, efla sjálfstæði og styðja við virkni og lífsgæði. Ekki er þörf á tilvísun frá lækni til að nýta þjónustuna.
Eftir að skráning hefur verið móttekin er haft samband og boðið í viðtal þar sem þjónustan er kynnt og metið hvaða þjónustuþættir henta best hverjum og einum. Í kjölfarið er sett saman einstaklingsmiðuð þjálfunaráætlun í samráði við viðkomandi með tilliti til þarfa, markmiða og þeirra úrræða sem eru í boði hverju sinni.
Parkinsonsamtökin bjóða upp á ráðgjafaþjónustu fyrir fólk með Parkinson og skylda sjúkdóma og aðstandendur þeirra.
Hjúkrunarfræðingur veitir stuðning, veitir upplýsingar um sjúkdóminn og metur þjónustuþörf.
Einnig er í boði fyrir fólk með Parkinson ráðgjöf hjá iðjuþjálfa, félagsráðgjafa, fjölskyldufræðingi, næringarfræðingi og sálfræðingi, allt eftir þörfum hvers og eins.
Ráðgjöfin er mikilvægur stuðningur fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra á öllum stigum sjúkdómsins, hvort sem um ræðir fyrstu skrefin eða áskoranir á síðari stigum.