Föstudaginn 29. maí kl. 12:00, tökum við hjá Parkinsonsamtökunum og Takti á móti hjólreiðagörpunum Einari Guttormssyni og Hartmanni Guðmundssyni á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði – og við viljum endilega sjá þig á staðnum!
Einar og Hartmann hafa nú lokið ótrúlegri 3.500 km hjólaferð frá Seattle til Phoenix í Arizona. Þeir hjóluðu leiðina á 37 dögum á venjulegum hjólum (ekki rafhjólum) og samanlögð hækkun ferðarinnar var um 36.000 metrar – sem jafngildir fjórum Everest-tindum. Ferðin var farin til að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og safna fyrir nýjum æfingatækjum í tækjasal Parkinsonsamtakanna.
Komdu og fagnaðu með okkur og frábærtu framtaki Einar og Hartmanns í þágu okkar allra.
Söfnunin er enn í fullum gangi
Styrkupphæðin rennur beint í endurnýjun á æfingatækjum fyrir Takt. Verið er að safna fyrir nýjum tækjum sem eru einföld og þægileg í notkun – tengd gervigreind sem tryggir að hvert tæki sé rétt stillt fyrir notandann, að æfingin sé gerð rétt og með réttri þyngd. Þetta er bylting fyrir þjálfun fólks með Parkinson.
- Styrkja með korti
- Millifærsla: Reikningur 111-26-25, kt. 461289-1779
Hagnýtar upplýsingar
- Hvenær: Föstudaginn 29. maí kl. 12:00
- Hvar: Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, Hafnarfirði
- Hver: Félagsmenn Parkinsonsamtakanna hjartanlega velkomnir
Til að við getum áætlað fjölda gesta biðjum við þig vinsamlegast um að skrá þig á skráningarforminu hér að neðan.