Taktur endurhæfing
Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna er heilbrigðisþjónusta sem er ætluð fólki sem hefur fengið greiningu á Parkinsonsjúkdómi eða skyldum sjúkdómi.
Þjónustan er í boði frá greiningu og þar til þörf er á sértækari úrræðum, svo sem dagþjálfun.
Endurhæfing er órjúfanlegur hluti meðferðar við Parkinsonsjúkdómi.
Ráðlagt er að hefja þjálfunina sem fyrst eftir greiningu til að viðhalda færni og hægja á framgangi sjúkdómsins – en það er aldrei of seint að byrja.
Markmið endurhæfingar í Takti
Markviss endurhæfing getur:
- hægt á framgangi sjúkdómsins
- dregið úr einkennum
- bætt lífsgæði
- stutt við sjálfstæði í daglegu lífi
Sérhæfð þjálfun fyrir fólk með Parkinson og skylda sjúkdóma
Boðið er upp á:
- Sjúkraþjálfun – heildstætt mat hjá sjúkraþjálfara þar sem hreyfifærni, jafnvægi, viðbragð, þol og styrkur er mælt. Matið er svo notað til að gera einstaklingsmiðaða æfingaáætlun sem tekur mið að getu og markmiðum hvers og eins
- Hópþjálfun – einstaklingsmiðuðu hópþjálfun tvisvar í viku þar sem lögð er áhersla á þol, styrk og jafnvægi.
- Göngu- og styrktarþjálfun – tímabundnir einstaklingstímar þar sem unnið er markvisst að því að bæta göngulag, jafnvægi og öryggi í hreyfingu ásamt styrktaræfingum.
- Fjölbreyttir hóptímar í iðju, raddþjálfun, jóga og fleira samkvæmt stundaskrá.
- Endurhæfingarráðgjöf
- Hjúkrunarráðgjöf
- Ráðgjöf frá iðjuþjálfa
- Aðstoð með val á stuðningstækjum og umsóknir til SÍ
- Hádegismatur alla virka daga
Þjálfun og dagskrá
Þjónustuþegar Takts fá aðgang að sérhæfðri þjálfun með áherslu á þol, styrk, göngu og jafnvægi.
Í Takti er jafnframt unnið út frá hugmyndafræði iðjuþjálfunar, þar sem lögð er áhersla á að efla færni til að sinna daglegum athöfnum.
Á stundaskrá eru fjölbreyttir tímar sem styðja við líkamlega, hugræna og félagslega færni, meðal annars:
- Raddæfingar
- Vatnslitamálun
- Jóga
- Bandvefslosun
- Slökun
- Handavax
Þjónustuþegar fá fasta tíma í þjálfun en fá að auki aðgang að Abler-appinu til að skrá sig í opna tíma til að tryggja sér sæti.
Framboð tímanna getur verið breytilegt og tekið er mið af þörfum og áhugasviði notenda.
Samstarf og viðburðir
Auk þjónustu Takts bjóða Parkinsonsamtökin öllum félagsmönnum upp á viðburði sem þjónustuþegar Takts geta einnig nýtt sér, svo sem:
- Fræðslufundi
- Samsöng
- Stuðningshópar fyrir fólk með Parkinson
- Stuðningshópur fyrir fólk með MSA
- Stuðningshópur fyrir aðstandendur
- Námskeið
- Félagsstarf
Staðsetning og opnunartími
Taktur er staðsettur í Lífsgæðasetri St. Jó (gamla St. Jósefsspítala), Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Í Takti er notaleg og aðgengileg aðstaða þar sem þjónustuþegar geta tekið þátt í fjölbreyttri endurhæfingu. Þjónustþegar í Takti geta keypt hádegisverð alla virka daga en nauðsynlegt er að skrá sig í matinn í síðasta lagi kl. 9:00 samdægurs í Abler-appinu eða í síma 552-4440.
Opnunartími:
- Mánudaga–fimmtudaga: kl. 9:00–15:30
- Föstudaga: kl. 9:00–13:30
Forstöðumaður Takts:
Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur