Oddfellow stúkan Bjarni riddari styrkir Takt

Parkinsonsamtökin fengu afhentan afar rausnarlegum styrk frá Oddfellow stúkunni Bjarna riddara sem nýverið fagnaði 50 ára afmæli sínu en styrkurinn var færður samtökunum í tilefni af afmælinu.

Oddfellow hafa verið dyggir stuðningsaðilar Parkinsonsamtakanna í gegnum tíðina og stuðningur þeirra hefur reynst starfseminni ómetanlegur. Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa afhenti Parkinsonsamtökunum árið 2022 uppgert húsnæði á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó. Sú gjöf verður seint fullþökkuð og hefur skapað einstaka aðstöðu fyrir starfsemi samtakanna og Takt endurhæfingu.

Gjöfin Bjarna riddara nemur 1,5 milljónum króna og mun hún renna til tækjakaupa hjá Takti. Um þessar mundir stendur yfir söfnun fyrir nýjum og fullkomnum æfingatækjum í tækjasalinn sem hentar vel þörfum einstaklinga með Parkinsonsjúkdóm og mun þessi stuðningur skipta sköpum í þeirri uppbyggingu.

Við sendum félögum í Bjarna riddara okkar innilegustu hamingjuóskir með 50 ára afmælið og þökkum af heilum hug fyrir þann hlýhug, stuðning og vináttu sem þeir hafa sýnt starfsemi Parkinsonsamtakanna í gegnum árin.

Helgi Gunnarsson undirmeistari Bjarna riddara (tv) og Steingrímur Páll Björnsson, formaður líknarsjóðs stúkunnar afhentu Ernu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra Parkinsonsamtanna styrkinn á afmælishátíð stúkunnar.