Ný stundaskrá tók gildi 7. apríl og inniheldur fjölbreytta og spennandi dagskrá.
Meðal nýrra og nýlegra tíma í dagskrá eru:
- Jafnvægisæfingar
- Borðtennis
- Bandvefslosun
- Handavinnuhópur
- Föstudagsfjör
- Leikfimi
Hægt er að skoða alla stundatöfluna hér:
https://parkinson.is/stundaskra/
Athugið að skrá þarf í hvern dagskrárlið í Abler-appinu eða með því að hringja í síma 552-4440. Ef upp koma vandamál við skráningu eða ef þið hafið ekki nýtt ykkur þjónustuna áður eruð þið velkomin að hafa samband í síma 552-4440 til að fá nánari upplýsingar.
Allir tímar fara fram í Lífsgæðasetri St. Jó nema annað sé tekið fram.
Hádegismatur alla virka daga
Nú er einnig boðið upp á heitan mat í hádeginu alla virka daga fyrir þau sem eru skráða þjónustuþega. Maturinn kemur frá Kokkarnir veisluþjónusta.
Nauðsynlegt er að skrá sig í matinn fyrir kl. 9:00 samdægurs í Abler-appinu eða með því að hringja í síma 552-4440.
Verð:
- 2.000 kr. fyrir hvert skipti
- Klippikort: 10 skipti á 18.000 kr. (1.800 kr. pr. skipti)
Skráning í þjónustu
Hafðu samband til að fá upplýsingar um þjónustuna. Hægt er að hafa samband með tölvupósti á netfangið: parkinson@parkinson.is eða hringja í s. 552-4440.
Við tökum vel á móti þér.