Skjálfti – ljósmyndasýning og útgáfuhóf fyrir samnefnda ljósmyndabók verður hjá Parkinsonsamtökunum laugardaginn 16. maí kl. 13-16.
Geir Ólafsson greindist með Parkinson árið 2018 og þurfti í kjölfarið að leggja myndavélina á hilluna. Hann hafði samt alltaf ástríðu fyrir ljósmyndun og tók því aftur upp þráðinn og leyfði þá skjálftanum að stjórna myndunum. Þannig að í stað þess að hætta þá ákvað hann að leyfa skjálftanum sem fylgir Parkinson að móta myndirnar, sem eru sannkölluð listaverk.
Nánari umfjöllun um Geir, ljósmyndabókina og sýninguna má lesa hér: https://www.visir.is/g/20262882214d/laetur-parkinson-ekki-lengur-stodva-sig
Verið velkomin á sýninguna!
📌 Parkinsonsamtökin, Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41 í Hafnarfirði
🗓️ Laugardaginn 16. maí kl. 13–16
Ljósmynd: Vísir/Vilhelm
Ljósmynd: Geir Ólafsson