Einar og Hartmann hjóla 3.500 km fyrir Parkinsonsamtökin. Á 37 dögum hjóla þeir frá Seattle til Arizona til að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og safna fyrir nýjum æfingatækjum í tækjasal Parkinsonsamtakanna í Lífsgæðasetri St. Jó.
Tveir íslenskir hjólreiðagarpar, Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson, eru nú langt komnir með krefjandi ferð um vesturströnd Bandaríkjanna. Þeir hjóla 3.500 km á 37 dögum frá Seattle til Phoenix í Arizona – og samanlögð hækkun ferðarinnar jafngildir fjórum Everest-tindum.
Lagt var af stað í kuldanum í Seattle og ferðinni lýkur í steikjandi hita í eyðimörkum Arizona. Hjólað er á venjulegum hjólum, ekki rafhjólum. Ferðin hófst 18. apríl og lýkur 24. maí en þeir félagar hafa nú þegar lagt að baki yfir 2.300 km af þeim 3.500 sem leiðin spannar.
Alþjóðlegur hópur sem hjólar saman
Einar og Hartmann eru fulltrúar Íslands í 27 manna alþjóðlegum hópi á vegum ZWAP (Zwifters Against Parkinson’s Disease) – hópi sem æfir hjólreiðar saman á netinu og styður hvert annað í baráttunni við Parkinsonsjúkdóminn. Flestir í hópnum eru sjálfir með Parkinson og komnir yfir sextugt. Með í för eru einnig hjólreiðamenn sem eru ekki með sjúkdóminn og styðja hópinn á leiðinni.
Þátttakendur hjóla mislanga leið. Einar og Hartmann hjóla alla leiðina, en sífellt fleiri bætast í hópinn og fjöldi manns hefur hjólað með þeim eina dagleið til að sýna stuðning. Hópurinn hefur fengið hlýjar móttökur frá Parkinsonfélögum víðs vegar um Bandaríkin og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt ferðinni mikinn áhuga.
Hreyfing er besta forvörnin
Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við hann. Parkinson er enn sem komið er ólæknandi sjúkdómur, en markviss og áköf þjálfun er það eina sem getur í rauninni haldið aftur af framgangi hans. Einar er sjálfur með Parkinson og hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu sem hluta af sinni meðferð og lífsstíl. Hartmann, hjólafélagi hans, fer ferðina með honum frá upphafi til enda.
Styrktu málefnið – söfnum fyrir nýjum æfingatækjum
Ferðin er jafnframt áheitasöfnun til styrktar Parkinsonsamtökunum, þar sem safnað er fyrir nýjum tækjabúnaði í æfingasal samtakanna í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Parkinsonsamtökin bjóða upp á sérhæfða endurhæfingu, fræðslu og ráðgjöf fyrir fólk með Parkinson, ásamt stuðningi við aðstandendur – og hver króna sem safnast skilar sér beint í betri þjónustu.
Hvernig á að styrkja
- Smelltu hér til að: Styrkja með korti
- Upplýsingar fyrir millifærslu: Reikningsnúmer: 111-26-25 – Kennitala: 461289-1779
Fylgstu með ferðinni
Fréttir úr ferðinni birtast daglega á samfélagsmiðlum:
- Facebook: Einar Guttormsson
- Facebook: Hartmann K. Guðmundsson
- Facebook: Pedal to Phoenix 2026 by Zwap
- Hvar er hópurinn staddur núna: Sjá kort
Stöndum með Einari og Hartmanni – þeir hjóla fyrir okkur öll.