Parkinsonsamtökin og Taktur endurhæfing bjóða upp á fjölbreytta dagskrá alla virka daga.

Dagskráin er sniðin að þörfum fólks með Parkinson og er fyrsta stigs þjónusta sem hentar strax frá greiningu. Boðið er upp á fjölbreytta tíma og stundaskráin er uppfærð reglulega í samræmi við þá þjónustu sem er í boði hverju sinni.

Þörf er á skráningu í alla dagskrárliði. Hafðu samband í síma 552-4440.

Í hóptímum í æfingasal er unnið markvisst með jafnvægi, styrk, liðleika, þol og samhæfingu. Æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og aðlagaðar að getu og markmiðum hvers og eins. Einnig er boðið upp á sérhæfða gönguþjálfun sem eru einstaklingstímar sem miða að því að bæta göngulag, jafnvægi og öryggi í hreyfingu. Notast er við einfaldar og áhrifaríkar æfingar sem styðja við aukinn styrk, jafnvægi, þol og öryggi í daglegu lífi.

Hóptímar og göngutímar eru lokaðir tímar og skráning nauðsynleg til að fá fasta tíma í þjálfun. Hafðu samband í síma 552-4440.