Mín markmið - æfingar í apríl 2020

Þá er furðulegasti apríl sem ég man eftir genginn í garð. Allar líkamsræktar stöðvar lokaðar og allir æfingatímar komnir í dvala.

Nú reynir á sem aldrei fyrr að hugsa vel um sig og skipuleggja sig betur.

Æfingarnar í apríl eru stuttar, einfaldar og nýja æfingu er að finna á hverjum degi. Þær eru þannig uppsettar að einungis er gerð 1x 10, 20 eða 30 endurtekningar af hverri æfingu.

Hægt er að BREYTA dagatalinu í FULLA ÆFINGU með því leika sér að dögunum 1-30.

Það er góð regla að byrja æfinguna alltaf á æfingu dagsins og búa svo til einhverja reglu úr tölum, vikunni eða ákveðnum dögum.

2 lotur af laugardeginum 4. apríl
2 lotur af fimmtudeginum 9. apríl
og enda svo á 4 lotum af sunnudeginum 26. apríl o.s.frv.

eða skrifa niður 10 handahófskendar tölur

eða taka 4 hringi af öllum fimmtudögum mánaðarins.

Möguleikarnir eru nánast endalausir.

Hér er hægt að sækja prentvænt útgáfu:

Ef þið hafið einhverjar óskir eða fyrirspurnir um æfingarpakka sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is

Mbkv. Sigurður Sölvi Svavarsson