Samverustund krydduð með heilsumolum, ávaxtaþeytingur og ljúffengur hádegismatur.
Ebba Guðný heilsukokkur hefur umsókn með matreiðslunámskeið í Takti miðvikudaginn 8. febrúar kl. 11:00. Hún ætlar að byrja á því að útbúa fyrir okkur ávaxtaþeyting til að sötra, á meðan hún fjallar um heilsu og næringu og sýnir okkur hvernig hún eldar pottréttinn sem við svo borðum saman klukkan 12.
Verð: 0 kr. fyrir félagsmenn en nauðsynlegt er að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu. Makar sem eru skráðir í Parkinsonsamtökin eru velkomnir.
Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn.