Jóga á miðvikudögum

Jóga fyrir fólk með parkinson og aðstandendur þeirra er í boði í Takti og hefur notið mikilla vinsælda. Nú verður bætt við jógatíma í dagskrána á miðvikudögum kl. 11. Fyrsti miðvikudagstíminn er 15. febrúar og verður svo vikulega á miðvikudögum kl. 11.

Jógatímarnir eru í boði fyrir fólk með parkinson og aðstandendur sem eru skráðir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Jógatímarnir eru ókeypis fyrir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld.

Nauðsynlegt er að skrá sig í hvern tíma í viðburðadagatali. Skráning opnar viku fyrir hvern tíma.