Matreiðslunámskeið með Ebbu 1. nóv.

Samverustund krydduð með heilsumolum, ávaxtaþeytingur og ljúffengur hádegismatur.

Matreiðslunámskeið þriðjudaginn 1. nóvmeber kl. 11:00 í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó.

Ebba ætlar að byrja á því að útbúa fyrir okkur ávaxtaþeyting til að sötra, á meðan hún fjallar um heilsu og næringu og sýnir okkur hvernig hún eldar pottréttinn sem við svo borðum saman klukkan 12.

Verð: 0 kr. fyrir félagsmenn en nauðsynlegt er að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því betra að skrá sig strax.

Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn.