Jólafundur PAN á Húsavík

Í tilefni 25 ára afmælis Parkinsonfélags Akureyrar og nágrennis verður jólafundur félagsins haldinn á Hótel Húsavík fimmtudaginn 17. nóvember kl. 18:00. Rútuferð frá Akureyri kl. 17:00, áætluð heimferð kl. 21:00.

Boðið verður upp á jólamat / hangikjöt með tilheyrandi, skemmtiatriði og lifandi tónlist. Félagið greiðir rútuna og niðurgreiðir matinn. Gert er ráð fyrir að kostnaður pr. mann verði um 5.000. – krónur.

Vinsamlega skráið ykkur og ykkar gesti sem allra fyrst á netfangið parkinsonfelag@gmail.com eða hjá Arnfríði formanni í síma 899-3480 í síðasta lagi mánudaginn 7. nóvember.