Nýtt námskeið í heilahreysti og minnisþjálfun

Nýtt námskeið í heilahreysti og minnisþjálfun hefst þriðjudaginn 1. nóvember.

Námskeið fyrir þau sem vilja bæta minnið. Námskeiðið byggir á fræðslu, þjálfun og ráðgjöf.

Fræðsla um heilastarfsemi, minnisstöðvar, verndandi þætti, æfingar, þrautir og hjálpartæki. Hægt er að óska eftir persónulegri ráðgjöf.

Námskeiðið er 3 skipti á þriðjudögum kl. 14:00–15:00 í Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 1. nóvember.

Umsjón: Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi hjá HeimaStyrk.

Tímar:
Þri. 1. nóvember kl. 14:00–15:00
Þri. 8. nóvember kl. 14:00–15:00
Þri. 15. október kl. 14:00–15:00

Verð: 0 kr. Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn.