Samverustund krydduð með heilsumolum, ávaxtaþeytingur og ljúffengur hádegismatur.
Matreiðslunámskeið þriðjudaginn 1. nóvmeber kl. 11:00 í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó.
Ebba ætlar að byrja á því að útbúa fyrir okkur ávaxtaþeyting til að sötra, á meðan hún fjallar um heilsu og næringu og sýnir okkur hvernig hún eldar pottréttinn sem við svo borðum saman klukkan 12.
Verð: 0 kr. fyrir félagsmenn en nauðsynlegt er að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því betra að skrá sig strax.
Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn.