Kynning á Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna verður í Lífsgæðasetri St. Jó miðvikudaginn 30. mars kl. 13:30. Þar verður farið yfir starfsemi Takts og fólki boðið að skoða nýja húsnæðið. Eftir kynninguna kl. 14:00 verður Parkinsonkaffi þar sem boðið upp á kaffiveitingar fyrir alla.
Kynningin fer fram í húsnæði Takts á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Gengið er inn í húsið bakdyra megin sem snýr að Hringbraut. Það er hægt að koma að húsinu frá Hringbraut og þá er keyrt inn á bílastæðið til móts við Jófríðarstaðaveg (hjá strætóskýli).
Engin skráning – verið öll velkomin!