Borðtennis – alltaf á föstudögum

Borðtennis nýtur mikilla vinsælda í endurhæfingu fyrir fólk með parkinson um allan heim. Parkinsonsamtökin bjóða félagsmönnum sínum upp á borðtennisæfingar á föstudögum kl. 11-12 í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði. Tímanir henta bæði byrjendum sem lengra komnum.

Anna Lilja Sigurðardóttir og Ingimar Ingimarsson leiðbeina þátttakendum. Borðtenniskúlur og spaðar eru á staðnum en þátttakendur er beðnir um að taka með sér innanhúss íþróttaskó og vatnsbrúsa.

Engin skráning og aðgangur ókeypis fyrir félagsfólk í Parkinsonsamtökunum. Næsta tími verður föstudaginn 1. apríl en alla borðtennistíma má finna á viðburðadagatalinu.