Aðalfundur Parkinsonsamtakanna 2023

Fundarboð

Aðalfundur Parkinsonsamtakanna 2023 verður haldinn þriðjudaginn 21. mars kl. 16:30 í fundarsalnum Lunga á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. 

DAGSKRÁ
  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um starf samtakanna á liðnu ári lögð fram.
  3. Endurskoðaðir reikningar samtakanna lagðir fram.
  4. Umræður og afgreiðsla skýrslu stjórnar og reikninga.
  5. Fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár kynnt, rædd og afgreidd.
  6. Ákvörðun um árgjöld og umsýslugjald deilda.
  7. Lagabreytingar.
  8. Inntaka nýrra deilda.
  9. Stjórnarkjör.
  10. Kjör 2ja skoðunarmanna reikninga.
  11. Kjör 3ja manna í laganefnd.
  12. Önnur mál.

Tillaga um að stofna sjálfseignarstofnun fyrir Takt endurhæfingu og eftirfarandi lagabreytingar verða lagðar fyrir fundinn:

Framboð í stjórn og nefndir óskast send með tölvupósti á netfangið parkinson@parkinson.is.

Boðið verður upp á kaffiveitingar á fundinum. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta.