Vellíðan og heilsa – Tilboð fyrir félagsmenn

Vellíðan og heilsa með gigt, verki og stoðkerfisvanda

Er gigt, verkir og stoðkerfisvandi að hrjá þig?

Lærðu að stuðla að meiri vellíðan, hreyfingu og heilsu þrátt fyrir gigt, verki og stoðkerfisvanda. Fræðsla og kennsla í verkjastillandi, orkusparandi og styrkjandi aðferðum sem styðja við iðju án verkja. Fjallað er um líkamann í heild en sérstök áhersla lögð á hendur og handafærni þar sem mikið af iðju dagsins er gerð með höndunum.

Námskeiðið er 3 skipti og fer fram á þriðjudögum milli kl.15:15–16:00 í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði, Suðurgötu 41. Leiðbeinandi er Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi.

Næsta námskeið hefst 7. mars.
Fullt verð er 24.500 kr en félagsmenn í Parkinsonsamtökunum fá 25% afslátt og greiða því 18.675 kr. fyrir námskeiðið.


Athugið að innifalið í námskeiðskostnaði er einfaldur búnaður sem nýtist á námskeiðinu og heima á milli tíma fyrir æfingar og til að verkjastilla.

Skráning fer fram hér