Taktur óskar eftir nýjum starfsmanni

Fjölbreytt skrifstofustarf á skemmtilegum vinnustað

Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna leitar að fjölhæfum einstaklingi sem býr yfir jákvæðni, áhugasemi og mjög góðri tölvufærni í fjölbreytt og spennandi starf í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Um nýtt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um skráningar, vistun gagna og tölfræði
  • Samskipti við notendur þjónustunnar í gegnum tölvupóst og samfélagsmiðla
  • Uppsetning á kynningar- og fræðsluefni fyrir heimasíðu, upplýsingaskjái og samfélagsmiðla
  • Auglýsingar á vef- og samfélagsmiðlum
  • Streymi á fræðslufundum og öðrum viðburðum
  • Setja upp þjónustukannanir og vinna úr gögnum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám sem nýtist í starfinu eða reynsla af sambærilegu starfi
  • Mjög góð tölvufærni og þekking á gagnavinnslu (Excel, SPSS)
  • Hæfni til að hanna og setja upp efni fyrir vefmiðla
  • Hæfni til að sjá um netstreymi, hljóð og mynd
  • Reynsla af WordPress, Adobe forritum og Canva er kostur
  • Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta