Nýtt námskeið í Heilahreysti og minnisþjálfun hefst 22. nóv.

Nýtt 3 vikna námskeið í Heilahreysti og minnisþjálfun.

Námskeið fyrir þau sem vilja bæta minnið. Námskeiðið byggir á fræðslu, þjálfun og ráðgjöf.
Fræðsla um heilastarfsemi, minnisstöðvar, verndandi þætti, æfingar, þrautir og hjálpartæki. Hægt er að óska eftir persónulegri ráðgjöf.
 
Námskeiðið er 3 skipti á þriðjudögum kl. 12:00–13:00 í Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 22. nóvember.
 

Tímar:

  • Þri. 22. nóvember kl. 12:00–13:00
  • Þri. 29. nóvember kl. 12:00–13:00
  • Þri. 6. desember kl. 12:00–13:00
Skráningin á námskeiðið virkar fyrir alla 3 tímana. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hvern tíma eins og þegar um opna tíma er að ræða.
 
Verð: 0 kr. Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn.