Núvitundarnámskeið hefst 23. nóv.

Núvitund – að læra að lifa með því sem er
 
3 vikna núvitundarnámskeið fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma og maka þeirra.
 
Umsjón: Anna Dóra Frostadóttir sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarkennari.
Námskeiðið hefst mið. 23. nóvember kl. 10 í Takti í Lífsgæðasetri St. Jó og verður vikulega í þrjú skipti.
  • Námskeiðið er fyrir þau sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við áskoranir lífsins og auka almenn lífsgæði sín.
  • Sýnt hefur verið fram á að núvitundarþjálfun dregur úr streitu og bætir almenna vellíðan – eins og aukna hugarró og sátt við lífið eins og það er.
  • Núvitundarþjálfun hjálpar okkur jafnframt að staldra við “hér og nú” og lifa í auknum mæli í samræmi við lífsgildi okkar. Styður okkur í því að vanda okkur í því að vera þær manneskjur sem við viljum vera.
Tímar:
Miðvikudaginn 23. nóv. kl. 10–11
Miðvikudaginn 30. nóv. kl. 10–11
Miðvikudaginn 7. des. kl. 10–11


Hvar: Í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði (sjá kort)

Fyrir hverja: Námskeiðið er fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma – og maka þeirra.

Verð: 0 kr. Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Nauðsynlegt er fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu.