Nýtt í dagskrá Takts – Stuðningshópur fyrir fólk með parkinson

Mánudaginn 22. janúar kl 15.00 hefst leiddur stuðningshópur fyrir fólk með parkinson greiningu.
Umsjón er í höndum Svövu Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðings, sem lengi starfaði í taugateymi Reykjalundar og hefur sinnt hjúkrunarráðgjöf í Takti af og til.  
Tímarnir fara fram í Straumi á 3. hæð alla mánudaga kl:15.00. Hámarksfjöldi í hvern hóp er 12 manns og skráning er nauðsynleg.