Nýr Facebook hópur fyrir Suðurland

Tveir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum hafa stofnað Facebook hóp fyrir fólk með Parkinson og aðstandendur sem búa á Suðurlandi.

Tilgangur hópsins er ná til þeirra sem búa á Suðurlandi en hópurinn getur verið vettvangur fyrir umræðu og gert fólki sem býr á svæðinu kleift að vera í meira sambandi.

Í framhaldinu væri svo hægt að hittast og halda fræðslufundi, ef áhugi er fyrir því.

Félagsmenn á Suðurlandi eru hvattir til að tengjast hópnum á Facebook