Vertu með í kröfugöngunni 1. maí

Verið velkomin í kröfugönguna 1. maí og ganga undir fána ÖBÍ réttindasamtaka. Tilvalið að bjóða fjölskyldu og vinum með!

Þátttakendur í kröfugöngunni hittast á Skólavörðuholtinu kl. 13.00 en gengið verður af stað kl. 13.30. ÖBÍ verður með forgönguborða og kröfuspjöld. Á forgönguborðanum þetta árið er sett fram krafan Jöfnuður og réttlæti! Þau sem geta taka kröfuspjöld en kröfugangan endar á Ingólfstorgi.

ÖBÍ réttindasamtök bjóða í kaffi að dagskrá lokinni í Sigtúni 42 og munu bjóða upp á ferð frá Ingólfstorgi upp á Skólavörðuholt (fyrir þá sem eru með bílinn þar) og þaðan í Sigtún 42.

Öll velkomin!

Það væri frábært að fá skilaboð frá þeim sem ætla að mæta á parkinson@parkinson.is, þannig að hægt sé að áætla fjölda.

Baráttukveðja og ósk um gleðilegt og gott sumar!