Núvitundarnámskeið 8. september – 22. september

Núvitund – að læra að lifa með því sem er

Núvitundarnámskeið í umsjón Önnu Dóru Frostadóttur sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarkennari. Námskeiðið hefst föstudaginn 8. september kl. 10 í Takti og verður í þrjú skipti á föstudögum.

  • Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við áskoranir lífsins og auka almenn lífsgæði sín.
  • Sýnt hefur verið fram á að núvitundarþjálfun dregur úr streitu og bætir almenna vellíðan – eins og aukna hugarró og sátt við lífið eins og það er.
  • Núvitundarþjálfun hjálpar okkur jafnframt að staldra við “hér og nú” og lifa í auknum mæli í samræmi við lífsgildi okkar. Styður okkur í því að vanda okkur í því að vera þær manneskjur sem við viljum vera.

Tímar:

  • Föstudaginn 8. september kl. 10–11
  • Föstudaginn 15. september kl. 10–11
  • Föstudaginn 22. september kl. 10–11

Hvar: Í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði (sjá kort)

Fyrir hverja: Námskeiðið er fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma – og maka þeirra sem eru skráðir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum.

Verð: 0 kr. Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Nauðsynlegt er fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu.

Skráningin á námskeiðið virkar fyrir alla 3 tímana. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hvern tíma eins og þegar um opna tíma er að ræða.

Viðburðir framundan

22sep

Borðtennis

11:00 - 12:00
Íþróttahúsið Strandgötu
25sep

Konuhópur

13:00 - 14:00
Lífsgæðasetur St. Jó
No event found!
TAKTUR SJÚKRAÞJÁLFUN - BIÐLISTI
FUGLAR HUGANS Í SÝNDARVERULEIKA