Núvitundarnámskeið 8. nóvember – 22. nóvember

Núvitund – að læra að lifa með því sem er

Núvitundarnámskeið í umsjón Önnu Dóru Frostadóttur sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og núvitundarkennari. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 8. nóvember kl. 11 í Takti og verður í þrjú skipti á miðvikudögum.

  • Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynna sér nálgun núvitundar til að takast á við áskoranir lífsins og auka almenn lífsgæði sín.
  • Sýnt hefur verið fram á að núvitundarþjálfun dregur úr streitu og bætir almenna vellíðan – eins og aukna hugarró og sátt við lífið eins og það er.
  • Núvitundarþjálfun hjálpar okkur jafnframt að staldra við “hér og nú” og lifa í auknum mæli í samræmi við lífsgildi okkar. Styður okkur í því að vanda okkur í því að vera þær manneskjur sem við viljum vera.

Tímar:

  • Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 11-12
  • Miðvikudaginn 15. nóvember kl. 11-12
  • Miðvikudaginn 22. nóvember kl. 11-12

Hvar: Í Takti á 3. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði (sjá kort)

Fyrir hverja: Námskeiðið er fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma – og maka þeirra sem eru skráðir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum.

Verð: 0 kr. Námskeiðið er niðurgreitt og því eingöngu í boði fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum. Nauðsynlegt er fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu.

Skráningin á námskeiðið virkar fyrir alla 3 tímana. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hvern tíma eins og þegar um opna tíma er að ræða.