ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþinginu ,,Satt og logið um öryrkja” í Háteig á Grand hótel þann 22. mars kl. 13–16.
Fyrirlesarar munu þar fara gaumgæfilega yfir kjör fatlaðs fólks á Íslandi, leiðrétta rangfærslur og draga fram hið rétta. Fulltrúi Gallup mun sömuleiðis kynna niðurstöður könnunar á viðhorfum almennings til kjara öryrkja auk þess sem von er á líflegum pallborðsumræðum.
Atli Þór Þorvaldsson formaður kjarahóps ÖBÍ heldur erindi á málþinginu en hann er fulltrúi Parkinsonsamtakanna í málefnahópnum.
Málþinginu verður streymt á visir.is og það bæði táknmáls- og rittúlkað. Við hvetjum öll til að mæta.
Hér má sjá upplýsingar um málþingið á Facebook.
Dagskrá
13:00 Ávarp formanns ÖBÍ réttindasamtaka
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
13:10 Staða öryrkja sem leita aðstoðar umboðsmanns skuldar, hvað er hægt að gera?
Sara Jasonardóttir, verkefnastjóri fræðslu og kynningarmála hjá Umboðsmanni skuldara
13:25 Viðhorf almennings til kjara öryrkja: Niðurstöður Gallup könnunar
Jóna Karen Sverrisdóttir, viðskiptastjóri hjá Gallup
13:40 Hve mikið? Hvað margir?
Atli Þór Þorvaldsson, formaður kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka
13:55 Kaffihlé
14:10 „Fordómar og lúxusliðið öryrkjar“
Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, varaformaður kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka
14:25 „Þær hafa það svo gott“ • Laufey Líndal Ólafsdóttir fulltrúi Pepp, grasrótar fólks í fátækt og félagslegri einangrun
14:40 Pallborð
15:40 Lokaorð
Atli Þór Þorvaldsson, formaður kjarahóps ÖBÍ réttindasamtaka