Kristjón og Guðlaug styrkja tækjasjóðinn

Hjónin Kristjón Víglundur Guðmundsson og Guðlaug Lúðvíksdóttir komu færandi hendi og afhentu Parkinsonsamtökunum 200.000 kr. í tækjasjóðinn á dögunum.

Við þökkum þeim kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf, sem kemur í afskaplega góðar þarfir og mun nýtast þjónustuþegum Takts vel. Tækjasalurinn er mikið notaður undir styrkri stjórn þjálfaranna okkar, Atla og Konráðs, og hvert framlag skiptir máli í að bæta aðstöðuna fyrir fólk með Parkinson.

Innilegar þakkir, Kristjón og Guðlaug ❤️