Gjöf frá Lionsklúbbi Hafnarfjarðar

Parkinsonsamtökin og Taktur hafa enn á ný notið stuðnings og velvildar Lionsklúbbs Hafnarfjarðar. Nýverið færðu félagar klúbbsins okkur glæsilegt píluspjald af vönduðustu gerð ásamt tilheyrandi búnaði.

Við færum Lionsklúbbi Hafnarfjarðar okkar bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf og þann stuðning sem klúbburinn hefur sýnt starfsemi samtakanna. 

Píluspjaldið mun nýtast vel í þjálfuninni í Takti. Pílukast er ekki aðeins skemmtilegt heldur getur það einnig stutt við þjálfun á jafnvægi, samhæfingu og einbeitingu. Við hlökkum til að sjá þjónustuþega njóta góðs af þessari nýju viðbót við starfsemina.

Á meðfylgjandi mynd tekur Konráð þjálfari hjá Takti við gjöfinni fyrir hönd samtakanna frá félögum í Lionsklúbbi Hafnarfjarðar.

Við þökkum Lionsklúbbi Hafnarfjarðar kærlega fyrir velvildina og hlýhuginn í garð Parkinsonsamtakanna og Takts.