JÓLASTUND
Parkinsonfélags Akureyrar og nágrennis
verður fimmtudaginn 7. desember kl. 17:00
Á HÚSAVÍK taka Abba og Raggi á móti gestum að Álfhóli 10
Á AKUREYRI tekur Gurrý á móti gestum að Undirhlíð 3, fundarsal á jarðhæð
Parkinsongreindir á svæðinu og aðstandendur þeirra
eru hvattir til að mæta og eiga saman ljúfa jólastund
VILT ÞÚ GERAST FÉLAGI Í PARKINSONFÉLAGI AKUREYRAR OG NÁGRENNIS?
Parkinsonfélag Akureyrar og nágrennis sinnir hagsmunum félagsmanna
og er málsvari þeirra sem greindir eru með parkinson á svæðinu.
Að auki sinnir félagið fræðslu og félagsstarfi fyrir þá sem
greindir eru með parkinson og aðstandendur þeirra
Yfir vetrartímann hittast félagsmenn tvisvar í mánuði
Á Akureyri þriðja miðvikudag í mánuði klukkan 14:00
Á Húsavík fyrsta mánudag í mánuði klukkan 14:00