Hvatningarstöð í maraþoninu

Það er mikið um að vera laugardaginn 19. ágúst en bæði Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt setja svip sinn á borgina þennan dag.

Áheitasöfnun í Reykjavíkurmaraþoninu er mikilvæg fjáröflun fyrir Parkinsonsamtökin. Glæsilegur hópur hlaupara hefur valið að safna áheitum fyrir Parkinsonsamtökin en á heimasíðunni www.hlaupastyrkur.is má sjá lista yfir þennan flotta hóp. Við hvetjum alla til að senda áheit og styrkja samtökin því margt smátt gerir eitt stórt.

Margir hafa lagt mikið á sig í undirbúningi fyrir maraþonið og við viljum að sjálfsögðu styðja vel við bakið á hlaupurunum okkar og hvetja þau áfram í hlaupinu. Hvatningarstöð Parkinsonsamtakanna verður á Suðurströnd, á bílastæðinu við sundlaug Seltjarnarness. Við hittumst þar kl. 8.45 á laugardaginn, rétt áður en við gerum ráð fyrir að fyrstu hlaupararnir í 21km og 42km hlaupa fram hjá. Hlaupararnir í 10km hlaupinu verða svo á Suðurströnd rétt fyrir kl. 10 og við gerum ráð fyrir að vera á svæðinu til kl. 10.45. Allir eru hvattir til að mæta með trommur, flautur eða hvað annað sem gefur frá sér skemmtileg og hvetjandi hljóð. 

Á undanförnum árum hafa þátttakendur í hlaupinu tekið það ítrekað fram við skipuleggjendur hversu ánægðir þeir eru með hvatninguna frá góðgerðafélögunum á hlaupaleiðinni og við ætlum ekki að slá slöku við í hvatningunni þetta árið. 

Það er gott að leggja tímanlega af stað þar sem einhver truflun verður á umferð og t.d. verður einstefna vestur Ægisíðu og Nesveg og austur Eiðsgranda en upplýsingar um takmarkanir á umferð og lokanir má sjá hér.

Við ætlum að fjölmenna á hvatningarstöðina og hvetja okkar fólk – vonum að allir mæti með læti.