Kæru félagar í aðildarfélögum ÖBÍ!
Þriðjudaginn 5. september næstkomandi kl 16:00 bjóða ÖBÍ réttindasamtök félögum aðildarfélaga á Opið hús í Sigtúni 42.
Við verðum á léttu nótunum en reiknum með því að vera að mestu innan dyra að þessu sinni.
Mikilvægt er að þau ykkar sem ætlið að koma skrái þátttöku hjá Kristínu kristin@obi.is og láti vita um matarofnæmi eða sérstakar óskir varðandi mat.
Dagskrá
16:00 – Húsið opnað
16:30 – Við erum í þessu saman – Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ
Tónlist og léttar veitingar
Hlökkum til að hitta ykkur og njóta samveru!