Skref sem skipta máli í Reykjavíkurmaraþoninu

Skráning í Reykjavíkurmaraþonið er hafin og við hjá Parkinsonsamtökunum leitum nú til þeirra sem vilja taka þátt í einni mikilvægustu fjáröflun samtakanna á árinu.

Á hverju ári velja einstaklingar að hlaupa fyrir Parkinsonsamtökin og safna áheitum til stuðnings starfsemi okkar. Sá stuðningur hefur skipt sköpum fyrir samtökin og gert okkur kleift að efla þjónustu, fræðslu, stuðning og starfsemi fyrir fólk með Parkinson og aðstandendur þeirra.

Við hvetjum þig til að hlaupa, skokka eða ganga fyrir Parkinsonsamtökin í ár, hvort sem þú velur skemmtiskokk, 10 km, hálfmaraþon eða heilt maraþon. Ef þú ætlar ekki sjálf(ur) að hlaupa getur þú einnig hvatt vini, fjölskyldu eða samstarfsfélaga til að taka þátt og safna áheitum fyrir gott málefni.

Hvert skref skiptir máli

Allir sem hlaupa fyrir Parkinsonsamtökin fá afhentan merktan hlaupa­bol Parkinsonsamtakanna ásamt litlum glaðningi, en það verður nánar auglýst þegar nær dregur.

Við erum afar þakklát öllum þeim sem hafa hlaupið fyrir Parkinsonsamtökin í gegnum árin og þeim sem ákveða að taka þátt í ár. Með framlagi ykkar hjálpið þið okkur að halda áfram mikilvægu starfi fyrir fólk með Parkinson.

Takk fyrir að hlaupa fyrir okkur