Fræðsla – Sjálfsefling í dagsins önn 11. október

Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir menntunarfræðingur, acc markþjálfi og jógakennari ætlar að vera með erindi hjá okkur í Takti þann 11. október.

Ingibjörg ætlar að skoða og ræða saman nokkrar mismunandi leiðir til sjálfseflingar í dagsins önn. Við skoðum aðferðir og lífslykla sem gera okkur gott og bæta almennt lífsgæðin.

Hvernig getur viðhorf þitt og hugsanagangur haft hvetjandi áhrif á þig?

Ingibjörg hefur starfað í Ljósinu endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda í tæp fjögur ár. Þar markþjálfar hún og leiðir nærandi djúpslökun. Hún leiddi einnig mjúkt jóga fyrir þjónustuþega í sumar.

Ingibjörg býður upp á markþjálfunarsamtöl og leiðir jóga og djúpslökun í Hæfi endurhæfingarstöð í Egilshöll einu sinni í viku. Allir geta nýtt sér þá þjónustu.

Fyrir hverja: Námskeiðið er fyrir fólk með parkinson og parkinsonskylda sjúkdóma – og maka þeirra sem eru skráðir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum.

Verð: 0 kr. Nauðsynlegt er fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti.

Staður og stund: Kl:13.00 í Lunga, salur á 2. hæð í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.