Afmælishátíð í Kringlunni 7. október

Parkinsonsamtökin 40 ára. Afmælishátíð í Kringlunni laugardaginn 7. október kl. 11–18.

Nýtt afmælisrit Parkinsonsamtakanna kemur út þennan dag og starfsemi Parkinsonsamtakanna og Takts kynnt fyrir gestum Kringlunnar. Tónlistaratriði, súkkulaðimolar og blöðrur fyrir börnin. Allir félagsmenn, aðstandendur og vinir eru hvattir til að koma og fagna þessum tímamótum.

Dagskrá:
Kl. 13 – Lúðrasveitin Svanur
Kl. 14 – Guðrún Árný
Kl. 15 – Jónsi í svörtum fötum
Kl. 16 – Elvis Iceland

Kynnir: Eva Ruza

Verið öll hjartanlega velkomin!