Date

14.01.2023
Lokið

Time

10:00 - 13:00

Staðsetning

Harpa
Website
http://harpa.is

Ráðstefna: Höldum takti

RÁÐSTEFNAN Í BEINU STREYMI

Ráðstefnan Höldum takti – parkinson og endurhæfing verður haldin í Norðurljósasalnum í Hörpu laugardaginn 14. janúar kl. 10:00–13:00.

Dagskrá:

  • Opnun ráðstefnunnar
    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra
  • Ávarp
    Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinsonsamtakanna
  • Gildi endurhæfingar í meðferð Parkinson
    Anna Björnsdóttir, taugalæknir
  • Nýr Taktur sleginn í endurhæfingu við Parkinson
    Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts
  • Hlé
  • Sjúkraþjálfun við Parkinson – staða og framtíðarsýn
    Andri Þór Sigurgeirsson, sjúkraþjálfari hjá Takti sjúkraþjálfun
  • Örsögur – Nýárshugleiðingar um nærandi skynjun
    Guðbjörg Björnsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir, Saga – Story House
  • Fundarstjóri: Freyr Eyjólfsson

Ráðstefnan er ætluð fólki með parkinson, aðstandendum þeirra og vinum og öllum sem hafa áhuga á málefninu. Við hvetjum fólk til að fjölmenna á ráðstefnuna og taka sína nánustu með. Reglulega verður gerð stutt hlé á dagskránni til að þátttakendur geti staðið upp og í hléi verður boðið upp á kaffiveitingar.

Aðgangur er ókeypis og opinn öllum en nauðsynlegt er að skrá sig á forminu hér fyrir neðan. Ráðstefnan verður líka í beinu streymi á parkinson.is.

Parkinsonfélag Akureyrar og nágrennis verður með opið hús bæði á Akureyri og Húsavík þar sem ráðstefnan veður í beinni útsendingu. Opið hús í Undirhlíð 3 (fundarsal á jarðhæð) á Akureyri og í Hlyn húsnæði eldri borgara á Húsavík. Öll velkomin.

Flokkar

Umsjón

Taktur
Taktur
Phone
552-4440
Email
parkinson@parkinson.is
Website
https://parkinson.is