Við bjóðum í kaffi 11. apríl

Alþjóðlegi Parkinsondagurinn er 11. apríl og við ætlum að bjóða félagsmönnum og aðstandendum í rjómatertukaffi  mánudaginn 11. apríl kl. 14:00-15:30 í Takti í Lífsgæðasetri St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.
Við ætlum að bjóða fólki að koma í nýtt húsnæði Parkinsonsamtakanna og Takts miðstöðvar Parkinsonsamtakanna í Lífsgæðasetri St. Jó og kynna sér starfsemina og njóta góðra kaffiveitinga.
Verið öll velkomin.