Parkinson 101 – Fræðsla á Kaffi Nauthól 8. október

PARKINSON 101: Fræðsla fyrir fólk með Parkinson, nýgreinda og aðstandendur þeirra verður haldið á Kaffi Nauthól þriðjudaginn 8. október kl.16:00-18:00.

Námskeiðið er fyrir þau sem eru á fyrstu stigum sjúkdómsins, hafa fengið greiningu nýlega eða telja sig hafa þörf fyrir fræðslu um Parkinson.

Sérfræðingar og fagfólk fræða um sjúkdómseinkenni og meðferð, endurhæfingu og úrræði.
Fyrirlesarar: 

  • Anna Björnsdóttir, taugalæknir
  • Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts
  • Andri Þór Sigurgeirsson, sjúkraþjálfari
  • Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, iðjuþjálfi

Boðið verður upp á léttar veitingar.
Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn en kostar 5.000 kr. fyrir aðra. Á staðnum verður hægt að skrá sig í samtökin og greiða 5.000 kr. félagsgjald eða greiða 5.000 kr. fyrir námskeiðið. Tekið verður á móti greiðslum með posa. Það er nauðsynlegt fyrir alla að skrá sig til að tryggja sér sæti á námskeiðinu. 

Staður: Kaffi Nauthóll, Nauthólsvegi 106, 102 Reykjavík  kl. 16:00.

Hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér fyrir neðan eða með því að skrá sig inn á Abler (virkar bara fyrir félagsmenn).

Einnig er hægt að skrá  með því að hringja í s. 552-4440 eða með því að senda tölvupóst á parkinson@parkinson.is.

SKRÁNING:



Athugið!

Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn en 5.000 kr. fyrir aðra. Á staðnum er hægt að skrá sig í samtökin og greiða 5.000 kr. í félagsgjöld eða greiða 5.000 kr. fyrir námskeiðið. Posi verður á staðnum.

Boðið er upp á léttar veitingar Vinsamlegast tilkynnið forföll með 24 klst. fyrirvara á netfangið parkinson@parkinson.is.