Ný viðbót í dagskrá hjá Takti
HÁDEGISMATUR
Parkinsonsamtökin bjóða félagsmönnum að panta léttan hádegismat á mánudögum til fimmtudags kl: 12.30 – 13.00 í Hjartanu á 3. hæð í St. Jó.
Verð er 1000 kr. fyrir félagsmenn í Parkinsonsamtökunum greitt með posa á staðnum.
Nauðsynlegt er að skrá sig í hádegismatinn svo hægt sé að áætla innkaup.
HANDAVINNUHÓPUR
Á Þriðjudögum verður boðið uppá handavinnuhóp þar sem hver og einn kemur með sína handavinnu. Hópurinn mun hittast í Hjartanu á 3. hæð kl:13.00.
JÓGA
Vegna gríðarlegra vinsælda á jógatímum Írisar höfum við bætt við fimmta tímanum í dagskránna hjá Takti og mun vera á þriðjudögum kl:10 í Auga, jógasal á 4. hæð.
Jóga verður því á:
- Mánudögum – kl:14
- Þriðjudögum – kl:10
- Miðvikudögum – kl:10
- Fimmtudögum – kl:10
- Föstudögum – kl:10
SLÖKUN – PARRAFIN MASKI Á HENDUR
Á miðvikudögum kl: 11 verður boðið uppá slökun og parrafin maska á hendur í Kyrrð á 3. hæð. Einungis verða 4 pláss í boði til að byrja með.
Í vefforritinu og í appinu er hægt að bóka sig í alla tímana eða hringja í s: 552-4400
– Sem fyrr er hægt að skrá sig í tíma með viku fyrirvara og viðburðir falla niður ef enginn er skráður tímann.