Ráðstefnan Höldum takti – parkinson og endurhæfing verður haldin í Norðurljósasalnum í Hörpu laugardaginn 14. janúar kl. 10:00–13:00.
Dagskrá:
- Opnun ráðstefnunnar
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra - Ávarp
Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinsonsamtakanna - Gildi endurhæfingar í meðferð Parkinson
Anna Björnsdóttir, taugalæknir - Nýr Taktur sleginn í endurhæfingu við Parkinson
Ágústa Kristín Andersen, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Takts - Sjúkraþjálfun við Parkinson – staða og framtíðarsýn
Andri Þór Sigurgeirsson, sjúkraþjálfari hjá Takti sjúkraþjálfun - Örsögur – Nýárshugleiðingar um nærandi skynjun
Guðbjörg Björnsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir, Saga – Story House - Fundarstjóri: Freyr Eyjólfsson
Ráðstefnan er ætluð fólki með parkinson, aðstandendum þeirra og vinum og öllum sem hafa áhuga á málefninu. Við hvetjum fólk til að fjölmenna á ráðstefnuna og taka sína nánustu með. Reglulega verður gerð stutt hlé á dagskránni til að þátttakendur geti staðið upp og í hléi verður boðið upp á kaffiveitingar.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum en nauðsynlegt er að skrá sig hér. Ráðstefnan verður líka í beinu streymi á parkinson.is.
Parkinsonfélag Akureyrar og nágrennis verður með opið hús bæði á Akureyri og Húsavík þar sem ráðstefnan verður í beinni útsendingu. Opið hús í Undirhlíð 3 (fundarsal á jarðhæð) á Akureyri og í Hlyn húsnæði eldri borgara á Húsavík. Öll velkomin.