Borðtennis hefur notið mikilla vinsælda í endurhæfingu parkinsongreindra um allan heim. Parkinsonsamtökin ætla að bjóða upp á borðtennis fyrir félagsfólk í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði (sjá kort).
Borðtennis verður föstudaginn 11. febrúar kl. 11:00 þar sem kennari mun útskýra reglurnar og allir fá að spila. Hentar bæði fyrir byrjendur sem lengra komna.
Borðtennisspaðar og kúlur eru á staðnum en þátttakendur eru beðnir um að koma með innanhúss íþróttaskó og vatnsbrúsa.
Þátttakendur eru beðnir um að huga vel að persónubundnum sóttvörnum.
Engin skráning og aðgangur ókeypis fyrir félagsfólk í Parkinsonsamtökunum.