Ókeypis gönguáskorun í júní

SÍBS og gönguklúbburinn Vesen og vergangur standa fyrir ókeypis gönguáskorun á höfuðborgarsvæðinu í júní. 
 
Markmiðið er að styðja fólk í að gera göngur að daglegri venju, efla líkamlegan og andlegan styrk og kynnast skemmtilegu fólki. Áhersla er lögð á að koma til móts við þarfir þeirra sem hafa lítið gengið eða hafa af einhverjum ástæðu ekki náð að hreyfa sig reglulega. 
 
Boðið verður upp á fjórar göngur þessu sinni en sú fyrsta er á dagskrá fimmtudaginn 3. júní klukkan 17:30. Lagt verður upp frá bílastæðinu við Vífilsstaði og gengin um 4 km leið. Hinar göngurnar verða farnar dagana 10., 16. og 24. júní og hefjast einnig klukkan 17:30. 
 
Skráning er nauðsynleg sökum fjöldatakmarkanna sem miðast við 150 þátttakendur. Stofnaður verður viðburður á Facebook fyrir hverja göngu, þar sem skráning fer fram. Viðburðir fyrir allar göngurnar eru aðgengilegir á facebooksíðum SÍBS og verða settir í loftið sex dögum fyrir göngu.