Velheppnuð Bimbuhátíð í Iðnó

Í síðustu viku var eftirminnilegt kvöld í Iðnó þar sem haldin var hátíð til minningar um Ingibjörgu Pétursdóttur (Bimbu) sem lést í mars sl. en hún var virkur félagsmaður í Parkinsonsamtökunum um árabil.

Í anda Bimbu var kvöldið fullt af söng og gleði enda frábærir listamenn sem komu fram. Fjölskyldan vildi nota tækifærið og styrkja gott málefni og Parkinsonsamtökin urðu fyrir valinu þar sem samtökin voru Bimbu og ástvinum hennar kær.

Söfnunin fór langt fram úr björtustu vonum en það söfnuðust 1.122.500 kr. sem renna óskiptar til Parkinsonsamtakanna. Við sendum fjölskyldu og ástvinum Bimbu okkar innilegustu þakkir fyrir. Stuðningurinn og hlýhugurinn er okkur ómetanlegur.