Samsöngur hefur verið á dagskrá í Takti á fimmtudögum kl. 11 og við munum halda því áfram með aðeins breyttu fyrirkomulagi. Nú ætlar Ragnheiður Haraldsdóttir að sjá um sönginn ásamt gestaspilurum. Ragnheiður er tónmenntakennari sem spilar bæði á píanó og harmonikku. Hún hefur kennt tónmennt í grunnskóla auk þess að kenna tónfræði og flautuleik í Tónlistarskóla Kópavogs og Tónskóla Sigursveins.
Við bjóðum Ragnheiði velkomna í Takt og þökkum Kristjönu, sem hefur séð um sönginn í haust, fyrir góðar samverustundir.
Verið öll velkomin í samsöng í Takti á fimmtudögum kl. 13 í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði. Makar eru velkomnir með : )
Umsjón með söng:
- 10. nóvember: Ragnheiður
- 17. nóvember: Benedikt
- 24. nóvember: Ragnheiður
- 1. desember: Benedikt
- 8. desember: Ragnheiður
- 15. desember: Heiða og Inga Margrét