Stuðningshópar fyrir maka fólks með Parkinson hefjast þriðjudaginn 6. febrúar næstkomandi í Takti miðstöð Parkinsonsamtakanna og verða á tveggja vikna fresti í vetur.
Um er að ræða tvo hópa:
- Fyrri hópurinn hittist kl. 14.30–15.30 og miðast við þau sem eru heimavinnandi / hætt að vinna.
- Seinni hópurinn hittist kl. 16.00–17.00 og miðast við þau sem eru enn á vinnumarkaði.
Íris Eik Ólafsdóttir, fjölskyldufræðingur, réttarfélagsráðgjafi og sáttamiðlari, mun leiða umræður. Stuðningshóparnir eru opnir og ókeypis fyrir maka sem eru skráðir í Parkinsonsamtökin en nauðsynlegt er að skrá í hvern tíma með því að smella á hópana hér fyrir ofan.