Stafræn örorkuskírteini í snjallsíma

Tryggingastofnun í samstarfi við Ísland.is býður nú upp á þann kost að sækja stafrænt örorkuskírteini í snjallsíma.

Þau sem eru með 75% örorkumat eiga rétt á örorkuskírteinum og er gildistíminn sá sami og örorkumatsins, sjá nánar hér á tr.is.
 
Örorkuskírteinin eru ekki ígildi persónuskilríkja en veita handhöfum þeirra ýmis konar afslætti hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Hér má sjá yfirlit á vef ÖBÍ yfir þessa aðila. 
 
Mælt er með að sækja stafræna örorkuskírteinið beint úr Ísland.is appinu. Nánari leiðbeiningar er að finna hér á Ísland.is en nánari upplýsingar um þessa nýbreytni má finna hér.