Tryggingastofnun í samstarfi við Ísland.is býður nú upp á þann kost að sækja stafrænt örorkuskírteini í snjallsíma.
Þau sem eru með 75% örorkumat eiga rétt á örorkuskírteinum og er gildistíminn sá sami og örorkumatsins, sjá nánar hér á tr.is.
Örorkuskírteinin eru ekki ígildi persónuskilríkja en veita handhöfum þeirra ýmis konar afslætti hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Hér má sjá yfirlit á vef ÖBÍ yfir þessa aðila.