Ráðgjafaþjónusta sálfræðinga
Í ráðgjafateymi Parkinsonsamtakanna starfa tveir sálfræðingar:
Viðtöl við sálfræðinga fara fram á Samskiptastöðinni í Skeifunni 11a eða í gegnum síma eða fjarfundarbúnað.
Félagsfólk í Parkinsonsamtökunum getur pantað tíma í gegnum samtökin með því að fylla út formið hér fyrir neðan hjá viðkomandi sálfræðingi. Í framhaldinu verður haft samband og fundinn viðtalstími.
Félagsfólk í Parkinsonsamtökunum fær 5 viðtalstíma hjá ráðgjöfum samtakanna endurgjaldslaust á hverju almanaksári. Hægt er að fá fleiri en einn tíma hjá hverjum fagaðila, allt eftir þörfum.
Erna Björk Einarsdóttir
- Greining og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum
- Kvíði
- Félagsfælni
- Þunglyndi
- Lágt sjálfsmat
- Sorg
- Streita, álag og kulnun
Sævar Már Gústavsson
- Greining og meðferð á sálrænum vanda fullorðina
- Almenn kvíðaröskun
- Félagsfælni
- Heilsukvíði
- Ofsakvíðaröskun
- Þunglyndi
- Áráttu- og þráhyggjuröskun