Ráðgjafaþjónusta næringarfræðings
Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur
Fríða Rún býður upp á næringarráðgjöf fyrir fólk með parkinson og skylda sjúkdóma.
Félagsfólk í Parkinsonsamtökunum getur pantað tíma hjá Fríðu Rún í gegnum samtökin með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Í framhaldinu verður haft samband og fundinn viðtalstími.
Félagsfólk í Parkinsonsamtökunum fær 5 tíma endurgjaldslaust á hverju almanaksári hjá ráðgjöfum samtakanna. Það er fyrir utan viðtöl hjá Ágústu Kristínu Andersen, hjúkrunarfræðingi og forstöðumanni Takts miðstöðvar Parkinsonsamtakanna.
